Um TT
Sagan á bak við nafnið

Þorgrímur Smári Ólafsson
Toggi Tuttugu
Eftir fjölda ára sem afreksmaður í íþróttum var komið að endastöð vegna meiðsla. Í tímarúminu sem myndaðist sá ég tækifæri og ákvað að stökkva — að hrinda af stað stærri hugmynd á mínum eigin forsendum.
Mér hefur alltaf fundist gaman að fylgjast með tísku og flottum fötum. Eftir samband við framleiðendur út í heimi byrjuðu hjólin að snúast. Í dag koma efni, jakkaföt og aðrar tilbúnar vörur frá Kína, Ítalíu, Bretlandi og Tyrklandi.
Til að byrja með ætlaði ég að mæla mig og vini mína fyrir jakkafötum. Síðan fóru fleiri að hafa samband. Ég segi stundum að ég sé frístundaskraddari — áhugamál með rekstrarlegu ívafi. Tilfinningin að sjá aðra í fötum sem þeir mótuðu sjálfir er geggjuð. Ofan á sérsaum ákvað ég að byrja framleiða tilbúin föt/vörulínur undir merkjum Tjé Tjé.
Skammstöfunin TT stendur fyrir Toggi Tuttugu en á handboltavellinum var ég alltaf númer 20. Tjé Tjé er það sama!
Ég vil að þú sért ánægður
Allir vilja eiga flott jakkaföt. Stíll einstaklinga er þó mismunandi og því mikilvægt að við séum á sömu blaðsíðunni.
Sveigjanleiki
Við finnum alltaf tíma, sama hvort það er á virkum degi, um helgi eða á sjálfan aðfangadag.
Nákvæmni
Hvort þú vilt fötin vel upp að líkama eða með örlítið meira plássi ræðum við og finnum út.
Heiðarleiki
Ef þú spyrð „hvað finnst þér?“ varðandi efni eða snið, svara ég eins og mér finnst í raun og veru.
Allir sáttir
Jakkafötin mæta í hús. Þú mátar og ert sáttur. Ef ekki er besta saumastofa bæjarins með okkur í liði.