Við vorum að opna nýja heimasíðu, 10% afsláttur af tilbúnum fatnaði ef þú skráir þig á póstlistann

Skilmálar

Skilmálar

Allar verslanir hafa skilmála. Hér eru okkar.

Upplýsingar um fyrirtækið/söluaðilann

TT/TjéTjé — ttsuit@ttsuit.is, áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, eða hætta að bjóða upp á ákveðna vöru fyrirvaralaust.

Greiðsluupplýsingar og sendingarmáti

Viðskiptavinir greiða með greiðslukorti, Apple Pay eða Google Pay í gegnum Teya. Greiðslan fer fram á öruggum Shopify-kassa frá ttsuit.is. Öll verð á vefsíðunni eru gefin upp með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður bætist við — nákvæmar sendingarleiðir og verð birtast í kassanum þegar heimilisfang er sett inn.

Afhending vöru og sendingarmáti

Afgreiðslufrestur pantana sem berast í gegnum vefsíðuna er 1–3 virkir dagar eftir að pöntun og greiðsla berst. Biðin getur lengst ef pöntun berst um helgi, á föstudegi eða rauðum dögum.

Komi fyrir að vara sé uppseld munum við hafa samband við viðskiptavin og kynna valkosti: hvenær varan kemur aftur, eða endurgreiða uppselda vöru að fullu sé þess óskað.

Allar pantanir eru sendar samkvæmt þeim leiðum sem valdar eru í kassanum. Öll vöruverð á vefsíðunni eru án sendingarkostnaðar. Hægt er að komast að samkomulagi um aðrar sendingarleiðir með því að senda tölvupóst á ttsuit@ttsuit.is. Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar sendingaraðila gilda við afhendingu. Seljandi, ber ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem hlýst á vörum kaupanda í flutningi. Ef varan týnist í pósti eða verður fyrir tjóni er það á ábyrgð kaupanda. Kaupandi ber ábyrgð á að réttar persónuupplýsingar komi fram.

Skilmálar fyrir sérsaum

Sækja þarf sérsaumuð föt eigi seinna en 4 mánuðum eftir mælingu, eða gegn samkomulagi. Kaupandi ber sjálfur ábyrgð á saumbreytingum á sérsaumuðum fatnaði komi hann í mátun 3 mánuðum eftir að mál voru tekin. Frá mælingu eru það venjulega 4–6 vikur þar til hægt er að klæðast sérsaumnum.

Skila og skipta

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Þetta gildir þó ekki um vörur sem keyptar eru á útsölu. Varan þarf að vera ónotuð, með öllum merkjum og í upphaflegum umbúðum. Ekki má rjúfa innsiglið ef varan er innsigluð.

Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Ef meira en 14 dagar eru frá vörukaupum getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu eftir að varan hefur verið móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem hægt er að nota í vefverslun.

Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara ásamt sendingu, honum að kostnaðarlausu. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 46/2000 og laga um neytendakaup. Vinsamlegast sendið tölvupóst á ttsuit@ttsuit.is áður en vöru er skilað.

Persónuupplýsingar viðskiptavina

Kaupandi fyllir út upplýsingar um nafn, tölvupóst og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandi að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn Tjé Tjé. Þessar upplýsingar eru trúnaðarmál og verða ekki afhentar þriðja aðila. Lögð er áhersla á öryggi persónuupplýsinga og farið er með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd. Tjé Tjé safnar eingöngu upplýsingum til að veita þá þjónustu sem beðið er um. Með samþykki þínu notum við Google Analytics og Meta Pixel til tölfræði og markaðssetningar, eins og lýst er í stefnu um vafrakökur.

Póstlisti og afsláttur

Með því að skrá þig á póstlista Tjé Tjé samþykkir þú að við sendum þér fréttir, tilboð og uppfærslur. Nýskráning gefur 10% afsláttarkóða (Open10) af tilbúnum fatnaði í vefverslun. Afslátturinn gildir ekki á gjafabréf eða sérsaum. Aðeins einn afsláttarkóði gildir á hver kaup. Kóðinn birtist um leið og þú skráir þig. Ein tilboð per netfang. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Lög, varnarþing og fyrirvarar

Öll ákvæði þessara skilmála ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Til baka á forsíðu